Sími: 856 7202
Da Capo 2003

Da Capo 2003


Inngangur

Da Capo 2003 er nemendaskrá fyrir tónlistarskóla sem þurfa að halda skrá yfir nemendur, forráðamenn og kennara. Kerfið virkar á PC tölvu með Microsoft Access 2003 hugbúnaði. Kerfið hefur verið í stöðugri notkun og þróun síðan 2000.


Hvaða upplýsingar er unnið með?

Unnið er með eftirfarandi upplýsingar:

  • Heimilisföng, símanúmer, netföng nemenda, forráðamanna og kennara
  • Einkatíma og hóptíma.
  • Skólagjöld og innborganir greiðenda
  • Stundaskrá nemenda og kennara
  • Hljóðfæraleiga
  • Próf, skólasókn og námsmat
  • Kennsluefni sem nemendur fá
  • Tónleikar sem nemandi tekur þátt í

Notendur

Notendur kerfisins eru skólastjórnendur, ritarar og kennarar. Kennarar nota sérstakt forrit fyrir kennara sem hægt er að setja upp á bókasafni skólans. Notandi velur það skólaár sem hann vill skoða eða vinna í. Gögn vistast undir valið skólaár þar sem það á við. Upplýsingarnar er hægt að kalla fram í ýmsum listum og þá er hægt að flytja út í Excel. Notendur geta prentað út fjölmargar skýrslur á prentara. Hægt er að prenta út límmiða á nemendur, kennara og forráðamenn. Ritarar þurfa að sjá um að taka reglulegt afrit til þess að koma í veg fyrir að gögn tapist.


Þjónustusamningur

Greitt er fyrir þjónustusamning sem gildir í eitt ár. Verð fer eftir fjölda nemenda, aðeins 2.719 kr á mánuði fyrir minni skóla. Þjónustusamningurinn tryggir nauðsynlega þjónustu eins og þróun á kerfinu og tilfallandi símaþjónustu.

Áfangar

2008 Kerfi á Internetinu

2004 Kerfi í Microsoft Access 2003

2000 Kerfi í Microsoft Access 2000

1989 Kerfi í HyperCard