School Archive
Inngangur
School Archive er eitt helsta upplýsingakerfi fyrir tónlistarskóla á Íslandi. Kerfið
er á vefnum og virkar bæði fyrir PC og Mac í algengum vöfrum eins og Internet Explorer
og Firefox. Kerfið er ný útgáfa af Da Capo 2003. Kerfið
hentar öllum listaskólum stórum sem smáum.
Eiginleikar kerfisins
Kerfið er með eftirfarandi eiginleika
- Umsóknir um skólavist (rafræn
umsókn)
- Nemendaupplýsingar
- Forráðamannaupplýsingar
- Kennaraupplýsingar
- Námsgreinar
- Einkatímar og hóptímar
- Skólagjöld, aukagjöld og innborganir
- Hljóðfæraleiga
- Stundaskrá nemenda og kennara
- Skólasókn nemenda
- Próf og námsmat
- Námsefni, viðburðir og verkefni
- Sérstakur kennararaðgangur
- Ótamarkaður notendafjöldi
- Allar skjámyndir prentast prentvænt út vafra
- 44 skýrslur
- 119 fyrirspurnir
- Stofubókanir
- Tölvupóstsendingar á persónur og hópa
- Myndir af persónum
- Útflutningur gagna í Excel og XML
- Viðmót á íslensku, ensku eða spönsku
- Aðgangur að daglegu afriti á öðrum þjóni
Leiðbeiningar
Með kerfinu fylgja leiðbeiningar þar sem farið er í gegnum helstu aðgerðir skref
fyrir skref. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar beint úr kerfinu.
Öryggi gagna
Í vafranum sést lás
sem gefur til kynna að öll samskipti eru dulkóðuð í gegnum
SSL, í slóðinni sést þá https í stað http. Hægt er að smella á lásinn til
þess að fá nánari upplýsingar um vefsvæðið.
Afrit af gagnagrunninum er sjálfkrafa vistað daglega. Með þessu móti er hægt að
endurheimta gögn aftur í tíma ef gögnum er óvart eytt.
Gagnagrunnurinn er jafnframt afritaður daglega á þjónn sem er á öðrum stað. Skóli
getur fengið samskonar aðgang að þeim þjóni þar sem hægt er að framkvæma allar aðgerðir
og líka prenta út skýrslur. Daglega afritið nýtist einnig vel til þess að þjálfa
nýja notendur.
Lykilorð notenda eru varin með (hash) dulkóðun í eina átt þannig að ekki er hægt að finna út hvaða lykilorð eru skráð aðeins hægt að sannreyna hvort innslegið lykilorð sé rétt.
Microsoft tækni
Notast er við nýjustu tækni frá Microsoft. Kerfið er skrifað í ASP.NET frá Microsoft
með Microsoft Visual Studio 2008. Gögn eru geymd í Microsoft SQL Server 2008 gagnagrunni.
Skýrslur eru unnar í
Reporting Services fyrir Microsoft SQL Server 2008.
Verð
Greitt er fyrir þjónustusamning
sem gildir í eitt ár. Verð fer eftir fjölda nemenda eða 4.183 kr á mánuði með
VSK fyrir minni skóla. Þjónustusamningurinn tryggir nauðsynlega þjónustu eins og
hýsingu, afritunartöku, þróun á kerfinu og tilfallandi símaþjónustu.
Prófaðu kerfið
Sendu tölvupóst á sveinn@eythorsson.com
til þess að fá notandanafn og lykilorð til þess að prófa kerfið.
Áfangar
2008 Kerfi á Internetinu
2004 Kerfi í Microsoft Access 2003
2000 Kerfi í Microsoft Access 2000
1989 Kerfi í HyperCard